Skráning í ökunám
Ökuskóli 1
kr.12.500
Rafræn útgáfa af kennslubókinni Út í umferðina er í boði fyrir nemendur í fjarnámi Ökunets.
Ökuskóli 2
kr.12.500
Rafræn útgáfa af kennslubókinni Út í umferðina er í boði fyrir nemendur í fjarnámi Ökunets.
Skráðu þig í ökunám og byrjaðu strax í dag!
Út í umferðina fyrir Ökunám á netinu
kr.2.000
Einungis nemendur Ökunets geta keypt aðgang að rafrænni útgáfu kennslubókarinnar Út í umferðina. Bókin er á bæði hljóð- og textaformi og er aðgengileg á kennsluvefnum.
Ökuskólinn Ökunet
Ökunet er ökuskóli sem byggir á traustum grunni með virku samstarfi sínu við Ökuskólann í Mjódd og reynslumikla starfandi ökukennara.
Almenn ökuréttindi
Almenn ökuréttindi (B) veita heimild til að aka:
Fólksbifreið með heildarþyngd 3.500 kg eða minna og með sæti fyrir 8 farþega eða færri auk ökumanns
Sendibifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna
Fólksbifreið eða sendibifreið með tengdan eftirvagn/tengitæki sem er 750 kg eða minna að heildarþyngd
Fólksbifreið eða sendibifreið með tengdan eftirvagn/tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 3.500 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins/tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins
Dráttarvél
Vinnuvél (má ekki vinna á hana nema hafa öðlast sérstök vinnuvélaréttindi)
Léttu bifhjóli (skellinöðru, 50cc)
Bifhjóli á þremur eða fleiri hjólum
Torfærutæki s.s. vélsleða, torfærubifhjóli
Hvað þarf að uppfylla fyrir bílpróf?
Áður en bílpróf fer fram á ökunemi að lágmarki að hafa lokið eftirtöldum kennslustundum og náð þekkingar- og færnimarkmiðum námskrárinnar:
Skriflegt próf
- Ökuskóli 1: 12 kennslustundir og Ökuskóli 2: 12 kennslustundir ef námi í ökugerði (Ökuskóli 3) er ekki lokið eða
- Ökuskóli 1: 12 kennslustundir, Ökuskóli 2: 10 kennslustundir ásamt kennslu í ökugerði (3 kennslustundir í stofu og 2 kennslustundir í bifreið).
- 14 ökutímar.
- Að lágmarki 16 ökutímar ef námi í ökugerði (Ökuskóli 3) er ekki lokið eða
- Að lágmarki 15 ökutímar ásamt kennslu í ökugerði (3 kennslustundir í stofu og 2 kennslustundir í bifreið).
- Sérstök athygli er vakin á kröfu um 14 verklegar kennslustundir fyrir skriflegt bílpróf.
Verklegt próf
Afar mismunandi er hversu marga verklega ökutíma nemandinn þarf hjá ökukennara. Algengur tímafjöldi í ökunámi er á bilinu 19-25 tímar. Námskráin segir að tímafjöldinn eigi að vera að lágmarki 17–25 tímar. Við leggjum áherslu á að gott ökunám er fyrst og fremst ódýr fjárfesting einstaklings í eigin umferðaröryggi og því má ekki fórna fyrir nokkurn mun.